Úthlutun í desember 2004

Úthlutað var 27 styrkjum, samtals að upphæð 5.050.000 kr.   Allsbárust 85 umsóknir um styrki úr sjóðnum að þessu sinni, þar af var einumsókn dregin til baka.


Almennur flokkur
Í  A-flokki, sem tekur til málefna, einstaklinga, félaga eða hópasem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA, voru afhentirsautján styrkir – hver styrkur er 150 þúsund krónur. Þessir hlutustyrki:

Valgarður Stefánsson 
“Myndlist á Akureyri að fornu”Útgáfa bókarinnar “Myndlist á Akureyri að fornu”. Yfirgripsmikið verk um sögu myndlistar í bænum.

Ragnar Hólm Ragnarsson – ný skáldsaga
Vinnur að því að skrifa skáldsögu sem gerist bæði á Akureyri og í Reykjavík.

Aðalgeir Egilsson - Minjasafnið á Mánárbakka á Tjörnesi

Mála safnahúsið að utan og laga aðgengi. Hjónin Aðalgeir Egilsson og Elísabet Bjarnadóttir hafa byggt uppmjög athyglisvert minjasafn á Mánárbakka sem hefur vakið verðskuldaðaathygli og fær vaxandi aðsókn.

Hið þingeyska fornleifafélag – skrá og kortleggja Þingey
Skrá og kortleggja Þingey í Skjálfandafljóti og gera þærupplýsingar aðgengilegar fólki. Hér er um að ræða áhugavert verkefnivegna sagnfræðilegrar tengingar, ferðaþjónustu og varðveislumenningarverðmæta Þingeyinga.

Hlynur Guðmundsson – Sjóminjasafn í Ólafsfirði
Að eigin frumkvæði réðist Hlynur í það viðamikla verkefni að safnasjóminjum í Ólafsfirði og setja upp safn, sem var opnað fyrirsjómannadaginn 2004. Safnið vekur athygli á grunnatvinnuvegiÓlafsfirðinga í gegnum tíðina og er áhugaverður afþreyingarkostur fyrirgesti og ferðafólk í Ólafsfirði.

Gangleri – hátíð framhaldsskólanna á Akureyri

Samstarfsverkefni framhaldsskólanna á Akureyri, sem er í sennmetnaðarfullt og áhugavert. Gæti, ef vel tekst til, orðið fastur liðurí menningarlífi Akureyrar.

Leikklúbburinn Saga – Bang, bang you’re dead

Leikklúbburinn Saga setur upp leikverkið Bang, bang you’re dead,sem er spennandi og stórhuga verkefni. Starf Leikklúbbsins Sögu er oghefur lengi verið mikilvægt við að virkja sköpunarkraft ungs fólks áAkureyri.

Menningarsmiðjan Populus tremula – röð listviðburða

Mikilsvert grasrótarverkefni sem er liður í áframhaldandi blómlegu menningarlífi í Listagilinu á Akureyri.

Eyþór Ingi Jónsson – námskeið og einkatímar í barokktónlist erlendis
Eyþór Ingi Jónsson er bæði kórstjóri og orgelleikari viðAkureyrarkirkju. Hann hefur m.a. unnið frábært starf með barna- ogstúlknakórum kirkjunnar. Að undanförnu hefur hann lagt nokkra rækt viðbarokktónlist og hefur hug á því að sækja sér aukna þekkingu á þessusviði.

Kammerkór Norðurlands – tónleikahald á árinu 2005

Í Kammerkór Norðurlands er söngfólk víða að af Norðurlandi semkemur saman til æfinga og flutnings á tónlist sem alla jafna er ekkiflutt af öðrum tónlistarhópum í fjórðungnum.

Kvennakór Akureyrar – tónleikahald og tónleikaferð
Kvennakór Akureyrar hefur ekki starfað í mörg ár, en hefur á þessumtíma vaxið fiskur um hrygg og er nú með fjölmennari kórum á Akureyri.Framundan er kraftmesta starfsár kórsins til þessa með metnaðarfullutónleikahaldi og tónleikaferð til Slóveníu.

Leikhúskórinn – tíu ára afmælistónleikar

Leikhúskórinn á Akureyri hefur starfað í tíu ár og á þessum árumhefur hann ráðist í mörg stór og verðug verkefni. Í tilefni af tíu áraafmæli kórsins mun kórinn efna til veglegra afmælistónleika.

Musika 2004/Þórey Ómarsdóttir – tónlistarhátíð í október 2004

Í október sl. efndi Musika til metnaðarfullra og stórhuga tónleika í Ketilshúsinu á Akureyri.

Sögufélag Siglufjarðar – útgáfa Siglufjarðarbókar – ársrits

Þarft og nauðsynlegt verk frá jafnt menningarlegu og sögulegu sjónarmiði.

Kvenfélag Kvíabekkjarkirkju – endurbygging kirkjunnar
Stórhuga og metnaðarfullt, en jafnframt fyrirsjáanlega fjárfrekt verkefni.

Jóhann árelíuz – bókaútgáfa
Í fyrra sendi Jóhann árelíuz frá sér skáldsöguna Eyrarpúkann, þarsem Eyrin á Akureyri var sögusviðið. Bókin vakti athygli og fékk góðarviðtökur. Nú vinnur Jóhann að bók númer tvö í skáldverki sem hófst meðEyrarpúkanum.

Skíðafélag Dalvíkur – Varðveisla minjagripa Daníels Hilmarssonar

Dalvíkingurinn Daníel Hilmarsson, sem féll frá langt um aldur fram,var til fjölda ára fremsti alpagreinaskíðamaður Íslendinga. Daníel vannötullega að framgangi skíðaíþróttarinnar og var ungum skíðamönnum góðfyrirmynd. Að frumkvæði Skíðafélags Dalvíkur hefur fjölmörgumverðlaunagripum Daníels verið komið saman á einn stað og þeir mynda núsafn sem heldur minningu þessa frábæra skíðamanns á lofti.


 

Ungir afreksmenn
Í B-flokki, sem tekur til ungra afreksmanna á sviði mennta, lista,íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek, t.d. á sviðibjörgunarmála, var úthlutað tíu styrkjum – hver styrkur að upphæð kr.250 þúsund. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára ogbúsettir á félagssvæði KEA.
Þessir einstaklingar hlutu styrk að þessu sinni:

Kristinn Ingi Valsson, skíðamaður á Dalvík
Kristinn Ingi hlýtur styrk til æfinga og keppni með A-landsliðiÍslands í skíðaíþróttum, en þrátt fyrir ungan aldur er Kristinn kominní fremstu röð hérlendra skíðamanna.

Árni Þór Sigtryggsson, handknattleiksmaður í Þór á Akureyri
Árni Þór hlýtur styrk vegna æfinga og keppni með unglingalandsliði Íslands í handknattleik.
Árni Þór er af mörgum talinn eitt mesta efni sem hefur komið fram íhandknattleik á undanförnum árum. Í vetur hefur Árni Þór tvímælalaustverið burðarás í meistaraflokksliði Þórs í DHL-deildinni íhandknattleik. Þá hefur hann verið einn af lykilmönnum í yngrilandsliðum Íslands og varð Evrópumeistari með U-21 landsliðinu árið2003.

Magnús Stefánsson, handknattleiksmaður í KA á Akureyri
Magnús hlýtur styrk vegna æfinga og keppni með unglingalandsliði Íslands í handknattleik.
Magnús er afar vaxandi skytta í liði sínu KA og hefur skotið mörgummarkverðinum skelk í bringu í vetur með sínum þrumufleygum. Magnúshefur nú þegar leikið nokkra leiki með yngri landsliðum Íslands ogstefnir ótvírætt hærra.

Rakel Rós Snæbjörnsdóttir, frjálsíþróttakona úr HSÞ
Rakel Rós, þrettán ára gömul frjálsíþróttakona úr Reykjadal, hlýtur styrk til æfinga og keppni í frjálsum íþróttum. Rakel Rós er afar efnileg frjálsíþróttakona og komin í allra fremstu röð á landinu í aldurshópnum sextán ára og yngri.

Salome Tómasdóttir, skíðakona úr Skíðafélagi Akureyrar

Salome hlýtur styrk til æfinga og keppni, en hún hefur í haustverið við æfingar í Austurríki. Í janúar verður hún ein af áttakeppendum frá Íslandi á Ólympíudögum Evrópuæskunnar í skíðaíþróttum íMonthey í Sviss.

Bjarni Konráð Árnason, körfuknattleiksmaður í Þór á Akureyri
Bjarni Konráð, sem er búsettur á Svalbarðsströnd, hlýtur styrk tilæfinga og keppni með unglingalandsliði Íslands í körfuknattleik. Bjarni Konráð varð Norðurlandameistari með U-18 landsliðinu íkörfuknattleik í maí 2004 og er ótvírætt í fremstu röð í sínumaldurshópi á landinu.

Ólafur Halldór Torfason, körfuknattleiksmaður í Þór á Akureyri

Ólafur Halldór hlýtur styrk til æfinga og keppni með unglingalandsliði Íslands í körfuknattleik.
Ólafur varð Norðurlandameistari með U-18 landsliðinu íkörfuknattleik í maí 2004 og er ótvírætt í fremstu röð í sínumaldurshópi á landinu.

Þorsteinn Ingvarsson, frjálsíþróttamaður úr HSÞ
Þorsteinn hlýtur styrk til æfinga og keppni í frjálsum íþróttum.Bárðdælingurinn Þorsteinn Ingvarsson er margfaldur Íslandsmeistariog Íslandsmethafi og hefur náð frábærum árangri á mótum innanlands semerlendis. Hann er einn af fremstu frjálsíþróttamönnum landsins í sínumaldursflokki.

Björgvin Björgvinsson, skíðamaður úr Skíðafélagi Dalvíkur.

Björgvin hlýtur styrk til æfinga og keppni með skíðalandsliði Íslands.Björgvin Björgvinsson hefur verið í hópi fremstu skíðamannalandsins um árabil og sinnt íþrótt sinni af elju og áhuga. Til aðstunda íþrótt sína dvelur hann erlendis bróðurpart úr ári og keppir þarvið bestu skíðamenn í heimi, bæði í heimsbikarnum í alpagreinum og áEvrópubikarmótum.

Arnór Þór Gunnarsson, handknattleiksmaður úr Þór á Akureyri
Arnór Þór hlýtur styrk vegna fjögurra utanlandsferða með drengjalandsliði Íslands í handknattleik á árinu 2004.  Arnór Þór er afar efnilegur handknattleiksmaður. Hann er þráttfyrir ungan aldur fastamaður í meistaraflokksliði Þórs og hefur verið íU-18 landsliði Íslands í handknattleik.

Til baka