KEA svf.

Félagsmenn KEA orðnir 17.000

Félagsmönnum í KEA fjölgar jafnt og þétt og eru þeir nú orðnir 17 þúsund. Hátt í 70% íbúa á félagssvæðinu 18 ára og eldri eru félagsmenn í KEA.
Ekkert lát er á vinsældum KEA kortsins og samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var í vor nota 80% félagsmanna kortið einu sinni í viku og yfir 62% nota kortið oftar en tvisvar í viku. Mjög góð viðbrögð hafa verið við tilboðum samstarfsaðila sem send hafa verið út á póstlista félagsmanna og höfum við áhuga á að efla þann þátt verulega.
Félagsmenn sem skipt hafa um netfang eru hvattir til þess að hafa samband við skrifstofu svo þeir missi ekki af tilboðum KEA kortsins.


Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf