KEA svf.

Akur ehf. Akur er eignarhaldsfélag um Þekkingu (100%).  Þekking er þjónustufyrirtæki á sviði

Fjárfestingar

Akur ehf.

Akur er eignarhaldsfélag um Þekkingu (100%).  Þekking er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni og starfsstöðvar eru á tveimur stöðum á landinu, á Akureyri og í Kópavogi.  Félagið býður fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu, internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margs konar sérlausnum, ráðgjöf og kennslu.  Eignarhlutur KEA er 50%.

www.thekking.is  

 


Ásprent Stíll ehf.

Fyrirtækið varð til við sameiningu Ásprents, Alprents og auglýsingastofunnar Stíls á haustdögum 2003, síðan sameinuðust félaginu Límmiðar Norðurlands árið 2005 og Stell árið 2006.  Félagið annast alhliða prentþjónustu, grafíska hönnun, útgáfustarfsemi og auglýsinga- og skiltagerð.  Um er að ræða stærstu prentsmiðju landsins utan höfuðborgarsvæðisins og var afkastageta hennar aukin umtalsvert með fjárfestingum í nýjum og fullkomnum búnaði á árinu 2006.  Hjá félaginu starfa um 45 manns, auk fjölda blaðbera.  Eignarhlutur KEA er tæp 60%.

www.asprent.is

 


Kælismiðjan Frost ehf.

Kælismiðjan Frost veitir almenna þjónustu, sinnir verktakastarfsemi og hannar heildarlausnir í kæliiðnaði.  Félagið hefur hannað, sett upp og þjónustað kælikerfi fyrir flest stærri frystihús landsins, allar helstu frystigeymslur, ísverksmiðjur, rækjuverksmiðjur, kjöt- og mjólkurvinnslur og kælikerfi um borð í fjölda fiskiskipa.  Félagið er hið stærsta sinnar tegundar á landinu og er með þjónustudeildir á Akureyri og í Reykjavík.  Í nóvember keypti félagið þriðjung í færeyska félaginu P/f Frost en það er annað af tveimur stærstu fyrirtækjum í kæliiðnaði þar í landi.  Hjá Kælismiðjunni Frost starfa tæplega 30 manns og KEA á um fimmtungs hlut í félaginu.

www.frost.is

 


Saga Captital fjárfestingarbanki hf
.

Saga Capital fjárfestingarbanki hf. var stofnaður á haustmánuðum 2006 með að frumkvæði  KEA.  Bankinn starfar á landsvísu með höfuðstöðvar á Akureyri.  Hjá bankanum starfa nú 35 manns.  KEA á 10% eignarhlut í bankanum.  Bankinn leggur áherslu á verkefni á fyrirtækjamarkaði s.s. samruna og yfirtökur, fjárfestingalán, útlán og stöðutökur á innlendum og erlendum verðbréfamörkuðum.

www.sagacapital.is


Sandblástur og málmhúðun hf.

Sandblástur og málmhúðun er þjónustufyrirtæki við málmiðnað og hefur yfir að ráða stærstu zinkhúðun landsins.  Öflug heildsala og innflutningur stáls og rekstrarvöru fyrir málmiðnað er veigamikill þáttur starfseminnar. Athafnasvæði Sandblásturs og málmhúðunar á Akureyri er yfir 20.000 fm. og meðal helstu framleiðsluvara má nefna ljósastaura, vegrið, girðingar og ristar.  Ferro Zink í Hafnarfirði er að fullu í eigu Sandblásturs og málmhúðunar og annast m.a. stálheildsölu á höfuðborgarsvæðinu.  Þá á félagið einnig 25% eignarhlut í Vélaverkstæði G. Skúlasonar á Neskaupsstað.  Starfsmenn eru hátt á sjöunda tuginn og  eignarhlutur KEA 44%. 

www.sandblastur.is


Slippurinn Akureyri ehf.

Hjá Slippnum Akureyri er alhliða þekking og reynsla í þjónustu við sjávarútveg og fleiri atvinnugreinar.  Félagið starfrækir upptökumannvirki og er með stóra flotkví í rekstri, veitir þjónustu á sviði málmiðnaðar og annast sölu hvers kyns varahluta tengdri starfeminni.   Þá hefur félagið m.a. annast verkefni af ýmsum stærðum og gerðum viðkomandi uppbyggingu virkjana og stóriðju.  Starfsmannafjöldi hefur verið í kringum 65 manns og eignarhlutdeild KEA í félaginu er 10%. 

www.slipp.is


Útgáfufélagið ehf.

Félagið gefur út vikublaðið Vikudag og er eignarhlutur KEA 71%.  Starfsmenn eru fjórir og megindreifingarsvæði Eyjafjörður, en auk þess er blaðið með fjölda lesenda víðar og mætti þar nefna Þingeyjarsveit og höfuðborgarsvæðið.  Blaðið er selt í áskrift og aflar auk þess tekna með auglýsingum.  Blaðið hefur nýlega opnað öfluga heimasíðu fyrir nýjar fréttir auk annarra upplýsinga af ýmsu tagi.

www.vikudagur.is


 


Tækifæri hf.

Tækifæri hf. er fjárfestingarsjóður sem starfræktur hefur verið frá árinu 1999.  Markmið sjóðsins var upphaflega bundið við fjárfestingar í nýsköpun og uppbyggingu atvinnutækifæra á Norðurlandi en fyrir rúmu ári síðan var fjárfestingastefnan útvíkkuð og getur sjóðurinn nú fjárfest á fleiri sviðum og víðar á landinu.  Á síðasta ári átti sér stað samruni Tækifæris og Upphafs-Nýsköpunar sem var fjárfestingarsjóður í eigu KEA, en sjóðirnir voru í mörgum tilvikum að vinna við sömu fjárfestingarkosti og augljós hagræðing af sameiningu þeirra.  Eftir samrunann er eignarhlutur KEA í Tækifæri 33,4% og er félagið nú langstærsti einstaki hluthafinn í Tækifæri en samtals eru eigendur á fimmta tuginn; stærstir eru Akureyrarbær, Stapi Lífeyrissjóður, sparisjóðir og sveitarfélög.  Hlutafé Tækifæris er 764 mkr. og í eignasafni félagsins eru nú á annan tug fjárfestinga.  Sjóðurinn hefur verið í vörslu Íslenskra verðbréfa. 

www.iv.is

 


Norðurvegur

Í febrúar 2005 var stofnað undirbúningsfélag um byggingu hálendisvegar milli Norður og Suðurlands.  Markmið félagsins er að sem fyrst verði ráðist í nauðsynlegar undirbúningsathuganir vegna vegagerðar um Kjöl með það að markmiði að tengja norður- og suðurland.

www.nordurvegur.is

 


Greið leið

Hlutafélagið Greið leið ehf. var stofnað 28. febrúar 2003  sem undirbúningsfélag fyrir gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.  Að félaginu standa öll sveitarfélög í Eyþingi, auk 10 fyrirtækja.  Tilgangur félagsins er að standa fyrir nauðsynlegum undirbúningi fyrir stofnun félags um gerð og rekstur jarðganga undir Vaðlaheiði.  Þar með talið er kynningarstarf, áætlanagerð og samningar við ríki og fjárfesta.

 


Fasteignafélagið Klappir ehf

Félagið er í 100% eigu KEA en það var upphaflega stofnað í kringum kaup félagsins á Glerárgötu 36, þar sem skrifstofur KEA eru nú til húsa.  Nafninu hefur verið breytt og eignum fjölgað en stefnt er að frekari uppbyggingu félagsins á komandi misserum og er þá fyrst og fremst horft til atvinnuhúsnæðis og þróunarverkefna ýmiss konar.


 
City Center properties

Fjögur félög eiga hlut í fasteignafélaginu City Center Properties, þar af þrjú í eigu Íslendinga; Isthar, félag í eigu Róberts Melax sem á 40% eignarhlut; Saga Capital Fjárfestingarbanki sem á 20%; og KEA sem á 10%. Að auki á norska félagið Auris Holdings 30% eignarhlut. Tveir bankar; Glitnir og Bnbank í Osló fjármögnuðu viðskiptin.  Eignir City Center Properties eru metnar á, á annan tug milljarða íslenskra króna og með kaupunum hefur félagið skipað sér í hóp 20 stærstu fasteignafyrirtækja Noregs.



Hreinsitækni

Hreinsitækni ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði hreinsunar á gatnakerfum og gönguleiðum og er stærst á því sviði á Íslandi.  Á árinu 2007 var Holræsahreinsun sameinuð félaginu, en það félag var stærst á landinu á sviði holræsahreinsunar. Tækjafloti til alhliða hreinsunar er mjög stór og í sifelldri endurnýjun og hefur félagið til umráða 38 sérhæfð tæki af ýmsum stærðum og gerðum m.a. götusópa, holræsabíla, myndavélabíla, búnað til að fást við svifryksmengun svo dæmi séu nefnd.  Viðskiptavinir félagsins eru sveitarfélög og fyrirtæki í 32 þéttbýliskjörnum um land allt.  KEA á tæplega fjórðungshlut í Hreinsitækni.

www.hreinsitaekni.is 

 
RES 

RES leggur áherslu á meistaranám og rannsóknir á sviði orkufræða, en hann var stofnaður í apríl 2007 eftir þriggja ára undirbúningstíma. Hér um að ræða einkarekstur sem verður skipulagður í tengslum við Háskólann á Akureyri. Einkahlutafélagið Orkuvörður ehf. rekur nýja skólann. Íslensk fyrirtæki og stofnanir standa á bak við Orkuvörður. Nálægð við Háskólann á Akureyri og samstarf við HÍ og ÍSOR eiga að tryggja orkunáminu góða aðstöðu, hæfustu kennara og gæði.

www.res.is

Til baka

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf