KEA svf.

Ungir afreksmenn Til viðurkenninga og styrkja til ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða

Flokkun M&V

Ungir afreksmenn
Til viðurkenninga og styrkja til ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek, t.d. á sviði björgunarmála. Umsækjendur skulu vera yngri en 25 ára. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn á grundvelli staðfestra viðmiðana.
Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.

Íþróttastyrkir
Til styrkja vegna íþrótta. Almenn markmið með styrkveitingum til íþróttamála eru að öll börn og unglingar eigi kost á einhvers konar íþróttaiðkun nálægt heimili sínu eða skóla. Að íþróttamenn eða lið sem skara fram úr geti stundað markvissar æfingar og sótt mót við sitt hæfi. Að stuðla að heilbrigðum lífsstíl almennings (hreyfing og mataræði). Að byggja upp aðstöðu sem er líkleg til að stuðla að ofangreindum markmiðum.
Umsóknir verða skilgreindar samkvæmt þremur flokkum, en þeir eru afreksíþróttir, sérstök verkefni og stuðningur við félög, kúbba sem gefa börnum og unglingum kost á íþróttaiðkun. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn á grundvelli staðfestra viðmiðana.
Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.

Almennir styrkir
Til einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæðinu. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. Í þessum flokki skulu allir styrkir vera jafnháir. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn á grundvelli staðfestra viðmiðana. Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.

Þátttökuverkefni

Til þátttökuverkefna á sviði menningarmála. Framkvæmdastjóri metur umsóknir og leggur tillögur að úthlutun fyrir stjórn. Sérstaklega skal litið til þess varðandi þátttöku KEA í slíkum verkefnum að hún geti orðið sýnileg og að fulltrúar KEA hafi möguleika á að hafa áhrif á útfærslu verkefna-jafnvel að fulltrúar KEA eigi beina aðild að stjórn verkefnis.


Til baka

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf