KEA svf.

KEA og Háskólinn á Akureyri gerðu fyrst með sér samstarfssamning í október 2002, sem

Háskólasjóður

KEA og Háskólinn á Akureyri gerðu fyrst með sér samstarfssamning í október 2002, sem endurnýjaður var í september 2007. Samningurinn felur í sér viljayfirlýsingu KEA um að stuðla að eflingu og uppbyggingu HA í gegnum Háskólasjóð KEA, til verkefna sem tengjast nemendum háskólans eða starfsemi hans í víðum skilningi.

Stjórn Háskólasjóðs KEA skipa rektor HA, framkvæmdarstjóri KEA og einn fulltrúi tilnefndur af hvorum aðila fyrir sig. Framkvæmdastjóri KEA stýrir starfi nefndarinnar en rektor HA annast kynningu á samningnum innan háskólans.

Styrkirnir skiptast niður í rannsóknarstyrki, styrki til búnaðarkaupa, námsstyrkir og styrki til sérverkefna. Ennfremur eru veittir styrkir fyrir framúrskarandi námsárangur stúdenta í viðskipta- og raunvísindadeild.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef RHA www.rha.is

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf