Á undanförnum áratugum hefur Menningarsjóður KEA, nú Menningar- og viðurkenningarsjóður KEA, veitt hverskonar menningarstarfsemi á félagssvæðinu öflugan fjárhagslegan stuðning. Svo verður áfram.
Sérstaklega er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði og aðeins er hægt að sækja um úr
sjóðnum þegar það á við. Auglýst er eftir umsóknum á www.kea.is og verður hægt að senda inn
umsóknir á vefnum eða fylla út þar til gerð eyðublöð sem hægt er að nálgast á skrifstofu KEA.
Umsóknir sem berast Menningar- og viðurkenningasjóði KEA eru sendar til fagráða sem meta umsóknir og gefa þeim einkunn samkvæmt útgefnum viðmiðum.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel útlistun á hverjum flokki Menningar- og viðurkenningasjóðs en hana má finna hér fyrir neðan.
- Flokkar Menningar- og viðurkenningasjóðs
- Fyrri úthlutunanir úr Menningar- og viðurkenningasjóði
- Reglugerð Menningar- og viðurkenningasjóðs
Umsækjendur eru hvattir til að vanda umsóknir sínar.
Umsóknareyðublöð:
- Almennir styrkir - Menningar- og viðurkenningarsjóð KEA
- Þátttökuverkefni - Menningar- og viðurkenningarsjóð KEA
- Íþróttastyrkir - Menningar- og viðurkenningarsjóð KEA
- Ungir afreksmenn - Menningar- og viðurkenningarsjóður KEA