Kjarnastarfssemi KEA í dag er fjárfestingar þar sem markmiðið er að ávaxta eignir KEA og ráðstafa hæfilegum arði af þeim til
félagsmanna sinna og til eflingar atvinnu og mannlífs á starfssvæðinu. KEA tekur auk þess þátt í fjölda verkefna sem
styðja markmið og tilgang félagsins. Upplýsingar um fjárfestingar og samstarfsverkefni má finna hér fyrir neðan.
Ýmis verkefni
Starfsendurhæfing Norðurlands
Starfsendurhæfing Norðurlands er sjálfseignastofnun sem
stofnuð var þann 9. febrúar 2006. KEA er einn af stofnendum Starfsendurhæfingar en stofnframlag er greitt af Vaxtarsamningnum annars vegar og KEA hins
vegar.Markmiðstarfsendurhæfingarinnar er að bjóða fólki með skerta starfsgetu, af ýmsum orsökum, uppá
starfsendurhæfingu. Starfsendurhæfingin er heildstæð lausn á vanda hvers þátttakanda. Unnið er með heilbrigðs-, félags- og
sálræna þætti auk þess sem boðið er uppá nám á framhaldsskólastigi.