KEA svf.

Hlutverk KEA er fjárfestingarfélag sem vinnur í þágu eigenda sinna að eflingu félagsins og þar með

Stefna KEA

Hlutverk
KEA er fjárfestingarfélag sem vinnur í þágu eigenda sinna að eflingu félagsins og þar með atvinnulífs og búsetuskilyrða á starfssvæði sínu.

Framtíðarsýn
KEA verði áfram fjárhagslega sterkt, rekið með ábyrgum hætti, byggt á arðsömum fjárfestingum og kjarnastarfssemi sem samræmist hagsmunum eigenda.
Með hagnaðarmyndun verði KEA öflugur þátttakandi og stuðningsaðili í samfélagslegum verkefnum.

Gildi KEA
Ábyrgð
KEA leggur áherslu á stöðugleika og virka áhættustýringu í fjárfestingum sínum.
KEA leggur áherslu á ábyrga þátttöku í samfélagslegum verkefnum  með styrkjum og stuðningi við einstaklinga, félagasamtök og stofnanir.

Traust
KEA  leggur áherslu á fagmennsku og trúverðugleika gagnvart hagsmunaaðilum.
KEA vill skipta máli fyrir fólk og fyrirtæki á starfssvæði sínu.

Þátttaka
KEA leggur áherslu á að þátttaka eigenda fyrirtækisins færi þeim beinan og óbeinan ávinning.
KEA vill vera eftirsóknarverður þátttakandi í verkefnum.

KEA er fjárfestingarfélag sem vinnur í þágu eigenda sinna að eflingu félagsins og þar með atvinnulífs og búsetuskilyrða á starfssvæði sínu

Aukin áhersla á kjarnastarfsemi
KEA byggi upp kjarnastarfssemi á starfssvæðinu sem samræmist framtíðarsýn félagsins og taki mið af félagsformi.

Arðgreiðslustefna
Arður til eigenda KEA verður greiddur í formi þátttöku í samfélagslegum verkefnum og viðskiptakjara með KEA kortinu.
KEA byggi upp kjarnastarfssemi á starfssvæðinu sem samræmist framtíðarsýn félagsins og taki mið af félagsformi.


Til baka

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf