Allar styrkbeiðnir sem sendar eru KEA eru teknar til umfjöllunar á fundum sem haldnir eru reglulega. Umsækjendum er bent á að vera tímalega með
umsóknir sínar. Allir sem senda umsóknir fá svar en vegna þess hversu mikill fjöldi umsókna berst KEA í viku hverri er ekki hægt
að verða við þeim öllum.
Athygli skal vakin á því að launamiðar eru gefnir út vegna úthlutunar á öllu styrkjum á vegum KEA. Því er
einstaklingum sem fá styrk úr sjóðnum bent á að halda til haga kvittunum vegna kostnaðar við viðkomandi verkefni. Umsækjendum er bent á
að styrkir fyrnast séu þeir ekki sóttir innan tveggja ára frá úthlutun.
Öll umsóknarform má fylla út á netinu en einnig er hægt að senda útfylltar umsóknir til skrifstofu félagsins.
Til baka