Aðalfundur Akureyrardeildar KEA 2016

Verður haldinn miðvikudaginn 6. apríl kl. 20:00 á Veitingahúsinu Greifanum, annarri hæð

Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins. Kosnir verða fulltrúar til aðalfundar KEA sem áformað er að halda 27. apríl og eru þeir félagsmenn Akureyrardeildar KEA sem vilja gefa kost á sér sem fulltrúar á aðalfund KEA, beðnir um að tilkynna það í síma 460 3400 ( Svanhildur ) eða í tölvupóstfangið svanhildur@kea.is fyrir kl 16:00 föstudaginn 1. apríl.  Þeir sem voru fulltrúar á aðalfundi KEA 2015 eru sérstaklega beðnir um að staðfesta áhuga sinn.

Á fundinum verða kosnir tveir fulltrúar í stjórn deildarinnar og tveir varafulltrúar.


Deildarstjórn Akureyrardeildar KEA