KEA-kortið er afsláttar- og fríðindakort sem KEA gefur út og sendir félagsmönnum, þeim að kostnaðarlausu.
Handhafi KEA-korts nýtur afsláttarins strax við afgreiðslu en kortið, sem ekki er greiðslumiðill, er merkt viðtakanda með nafni og kennitölu.
Á kortinu er strikamerki sem og segulrönd en þær upplýsingar sem þar eru geymdar eru ekki persónugerðar, sem þýðir að sömu
upplýsingar eru geymdar í strikamerki og segulrönd allra korta og notkun þeirra því ekki hægt að tengja einstaka félagsmönnum.
Þegar að afgreiðslu kemur nægir í mörgum tilfellum að framvísa kortinu en í öðrum tilfellum er strikamerki skannað eða
segulrönd lesin þannig að kortinu er rennt í gegnum posa.
Mikilvægt er að félagsmenn kynni sér vel sér vel skilmála sem kynntir eru hér fyrir neðan.
- KEA-kortið er eign KEA og varðar misnotkun á því við lög.
- Kortið má sá einn nota sem það er gefið út á, í samræmi við gildandi reglur.
- Glatist það er finnandi beðinn að skila því á skrifstofu KEA.
- Við notkun skal félagsmaður ávallt vera undir það búinn að framvísa skilríkjum.
- KEA-kortið er merkt félagsmönnum, en upplýsingar í segulrönd og strikamerki eru ekki persónugerðar þannig að ekki er um neina miðlæga upplýsingaskráningu varðandi kortanotkun að ræða.
- Gildistími tilboða sem kynnt eru á síðunni og í bæklingi sem fylgir kortinu er í flestum tilfellum til 1. september 2012.
- Tilboðin sem kynnt eru hér á eftir gilda í verslunum á starfssvæði KEA nema að annað sé tekið fram. Starfssvæði KEA er Eyjafjörður og Þingeyjarsýslur.
- Viðskiptakjörin gilda ekki þegar um útsölur eða sértilboð hjá samstarfsaðilum er að ræða.
- Þau kjör sem samstarfsaðilar bjóða kunna að breytast og verða slíkar breytingar kynntar hér á síðum KEA -kortsins.
- Tilboð til viðskiptavina eru birt með fyrirvara um prentvillur.