Menningar- og viðurkenningarsjóður KEA
Menningar- og viðurkenningasjóður KEA svf., sem áður hét Menningarsjóður KEA, styður við menningarmál á félagssvæði KEA með
fjárframlögum. Úthlutað er úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA einu sinni á ári.
Reglugerð fyrir Menningar- og viðurkenningarsjóð KEA
KEA starfrækir Menningar- og viðurkenningarsjóð sem starfa skal í samræmi við reglugerð þessa og önnur ákvæði sem bundin eru
samþykktum félagsins og gildandi lögum.
1. Árlega ráðstafar stjórn KEA ákveðnum fjármunum til menningar, íþrótta, mennta- og velferðarmála
á félagssvæðinu.
Aðalfundur getur ákveðið að nýta heimild í samþykktum félagsins til að binda ráðstöfun arðs af ákveðnum eignum KEA
við menningarmál. Liggi slík ákvörðun ekki fyrir skal stjórn ákveða þá fjárhæð sem varið er til
ráðstöfunar Menningar- og viðurkenningarsjóðs á yfirstandandi ári og skiptingu þeirrar fjárhæðar á milli flokka sbr. 4.
grein þessarar reglugerðar
2. Til að undirbúa og gera tillögur um ráðstöfun fjárins í liðum a, b og e samkvæmt 4. grein þessarar
reglugerðar starfar Fagráð Menningar og Viðurkenningarsjóðs KEA. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunnir í samræmi við
nánari leiðbeiningar þar um. Fagráðið skal skipað valinkunnum einstaklingum og starfar það á ábyrgð
framkvæmdastjóra KEA. Samþykktur kostnaður af störfum þess greiðist af félaginu.
3. Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast í gegnum heimasíðu félagsins www.kea.is eða á skrifstofu félagsins á sérstökum eyðublöðum sem KEA lætur útbúa. Auglýsa skal með
opinberri auglýsingu eftir umsóknum í tilteknum flokkum sjóðsins -einu sinni á ári eða oftar - samkvæmt ákvörðun
stjórnar. Einnig kynnir KEA skilmála og starfsreglur sjóðsins á heimasíðu sinni.
4. Fjármunum Menningar- og viðurkenningarsjóðs skal skipt milli eftirfarandi verkefnaflokka:
a) Til einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæðinu. Um getur verið
að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í
víðtækri merkingu. Í þessum flokki skulu allir styrkir vera jafnháir. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn á grundvelli
staðfestra viðmiðana. Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.
b) Til viðurkenninga og styrkja til ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök
afrek, t.d. á sviði björgunarmála. Umsækjendur skulu vera yngri en 25 ára..
Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn á grundvelli staðfestra viðmiðana.
Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.
c) Til þátttökuverkefna á sviði menningarmála..
Framkvæmdastjóri metur umsóknir og leggur tillögur að úthlutun fyrir stjórn. Sérstaklega skal litið til þess varðandi
þátttöku KEA í slíkum verkefnum að hún geti orðið sýnileg og að fulltrúar KEA hafi möguleika á að hafa
áhrif á útfærslu verkefna - jafnvel að fulltrúar KEA eigi beina aðild að stjórn verkefnis.
d) Í tengslum við úthlutun í árslok leitast stjórn við að koma fram með nafn einstaklings, félagasamtaka eða
annarra aðila sem hljóta skulu sérstaka styrki, verðlaun eða viðurkenningar fyrir einstaka frammistöðu og óeigingjarnt starf.
e) Til styrkja vegna íþrótta. Almenn markmið með styrkveitingum til íþróttamála eru að öll börn og
unglingar eigi kost á einhverskonar íþróttaiðkun nálægt heimili sínu eða skóla. Að íþróttamenn eða lið
sem skara fram úr geti stundað markvissar æfingar og sótt mót við sitt hæfi. Að stuðla að heilbrigðum lífsstíl almennings
(hreyfing og mataræði). Að byggja upp aðstöðu sem er líkleg til að stuðla að ofangreindum markmiðum.
Umsóknir verða skilgreindar samkvæmt þremur flokkum, en þeir eru afreksíþróttir, sérstök verkefni og stuðningur við
félög, klúbba sem gefa börnum og unglingum kost á
íþróttaiðkun. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn á grundvelli staðfestra viðmiðana.
Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.
5. Skrifstofa KEA tekur við umsóknum um styrki eða samstarf og annast varðveislu gagna Menningar- og viðurkenningarsjóðs KEA.
6. Með allar upplýsingar sem tilheyra umsóknum og vinnslu þeirra skal farið sem trúnaðarmál. Einstaklingar sem skipa
fagráð á hverjum tíma eiga rétt á að njóta nafnleyndar við störf sín í þágu sjóðsins.
7. Gera skal grein fyrir úthlutunum úr sjóðnum á heimasíðu KEA og í ársskýrslu félagsins.
Með staðfestingu reglugerðar þessarar falla úr gildi eldri reglur Menningar- og viðurkenningarsjóðs KEA.
Samþykkt á fundi stjórnar KEA janúar 2006.