Aðalfundur Akureyrardeildar KEA 2015

Verður haldinn miðvikudaginn 8. apríl kl. 20:00 á Veitingahúsinu Greifanum, annarri hæð

Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins. Kosnir verða fulltrúar til aðalfundar KEA sem áformað er að halda 28. apríl og eru þeir félagsmenn Akureyrardeildar KEA sem vilja gefa kost á sér sem fulltrúar á aðalfund KEA, beðnir um að tilkynna það í síma 460 3400 ( Svanhildur ) eða í tölvupóstfangið svanhildur@kea.is fyrir 28. mars.  Þeir sem voru fulltrúar á aðalfundi KEA 2014 eru sérstaklega beðnir um að staðfesta áhuga sinn.


Deildarstjórn Akureyrardeildar KEA