Skáldið Davíð Stefánsson byggði húsið og bjó í því til dauðadags. Á efri hæð hússins er íbúð hans varðveitt eins og hann skildi við hana og er þar eitt merkasta bókasafn landsins í einkaeigu og fágæt listaverk eftir vini skáldsins. Á neðri hæð hússins er íbúð sem rithöfundar og fræðimenn geta fengið til afnota.
Leiðsögn er í safninu þriðjudaga til laugardaga kl. 14, 15, og 16, nauðsynlegt er að bóka tíma á tix. is eða heimasíðu Minjasafnsins.
Safnið er opið alla virka daga frá kl. 12-17 frá 1. júní til 1. september.
Viðskiptakjör
20% afsláttur af aðgangseyri.