Úthlutun í apríl 2004

Að þessu sinni bárust 119 styrkumsóknir í sjóðinn. Úthlutað varstyrkjum til 38 einstaklinga og félagasamtaka, samtals að upphæð kr.8.150.000.

Í flokki ungra afreksmanna bárust 17 styrkumsóknir og voru veittir 12 styrkir alls 1.900.000 kr.

Sjö ungmenni hlutu kr. 200.000

Arnór Atlason, handboltamaður
Evrópumeistari í handknattleik.

Árni Björn Þórarinsson, handboltamaður

Evrópumeistari í handknattleik.

Ásgeir Alexandersson
Til þátttöku á Ólympíuleikunum í eðlisfræði sem haldnir verða í S-Kóreu í júlí 2004.

Finnur Dellsén.

Til þátttöku á Ólympíuleikunum í eðlisfræði.

Sigurður Ægir Jónsson
Til þátttöku á Ólympíuleikunum í eðlisfræði.

Haukur Sigurðarson
Til þátttöku á Ólympíuleikunum í eðlisfræði.

Halldór B. Halldórsson, skákmaður
Akureyrarmeistari og skákmeistari Norðlendinga.


Fimm ungmenni hlutu kr. 100.000:

Andrea Ösp Karlsdóttir, sundkona
Á mörg Akureyrarmet í sundi, ung og upprennandi sundkona.

Arnþór Bjarnason, íshokkí
Æfir og keppir fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramótum.

Guðmundur Ómarsson, skotamaður
Keppir fyrir Íslands hönd í leirdúfuskotfimi.

Ómar Smári Skúlason, íshokkí
Á sæti í U-18 og U-20 ára í landsliði Íslands.

Stefán Guðnason, handboltamaður
Hefur verið valinn til æfinga og keppni með Evrópumeisturum síðasta árs.


Í flokki A, málefnum einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna aðmikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA bárust 75 umsóknir. Veittirvoru 20 styrkir eða alls kr. 2.000.000.
Eftirtaldir aðilar hlutu kr. 100.000 hver:

Glímuráð HSÞ
Vegna ferðar fimm ungmenna til Kanada.

Jón Laxdal Halldórsson, myndlistarmaður
Vegna sýningar.

Jóna Hlíf Halldórsdóttir, myndlistarmaður
Vegna sýningar ungs fólks í Ketilhúsinu.

Aaron og Helga Mitchell, myndlistarmenn
Vegna sýningar.

Stefán Magnússon
Vegna endurbóta á minningarreit og minnisvarða um Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.

Lionsklúbbur Siglufjarðar
Til að lagfæra kirkjugarðinn á Hvanneyrarhólum.

Myriam Dalstein
Til að viðhalda byggingarlist svæðisins með endurbyggingu hlöðu.

Félag eldri borgara í Dalvíkurbyggð og Hrísey
Til þátttöku á kóramóti á Siglufirði.

Harmonikufélag Þingeyinga
Til hljóðritunar á leik félagsmanna.

Söngfélagið Sálubót
Vegna upptöku og útgáfu á geisladiski í tilefni 10 ára afmælis kórsins.

Vorboðinn, kór eldri borgara Siglufirði
Vegna kóramóts á Norðurlandi.

Roar Kvam

Vegna undirbúnings og æfinga með kvennakórnum Emblu.

Safnahúsið á Húsavík
Vegna uppbyggingar sjóminjasafns.

Björn Þorláksson, rithöfundur
Til ritstarfa.

Steingrímur Kristinsson, Siglufirði
Vegna vinnu við ljósmyndasafn.

Fjölmennt, fullorðinsfræðsla fatlaðra
Vegna ferðar starfsmanna til að kynna sér nýjungar sem tengjast kennslu og námsgagnagerð.

Golfklúbburinn Hvammur
Til lagfæringar og uppbyggingar vallarins.

Baldvin Zóphaníasson
Vegna heimildamyndar um “Sjallaárin”.

Leikskólar Akureyrar
Vegna verkefnisins “Bær í barnsaugum”.

Norræna upplýsingastofan
Vegna dönskunámskeiðs unglinga í Danmörku.


Í flokki C, þátttökuverkefna bárust 8 umsóknir, veittir voru 6 styrkir að upphæð kr. 4.250.000.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrk:

Flugsafnið á Akureyri
Til uppbyggingar safnsins kr. 1000.000.

Sögufélag Eyfirðinga
Vegna útgáfu á Ábúenda- og jarðatali Stefáns Aðalsteinssonar kr. 500.000.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Vegna tónleikahalds kr. 500.000.

Listasumar á Akureyri
Vegna fjölbreyttrar dagskrár sumarið 2004 kr. 750.000.

Karlakór Akureyrar-Geysir
Vegna útgáfu á geisladiski í tilefni 110 ára afmælis Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi kr. 500.000.

Ferðafélag Akureyrar
Vegna uppbyggingar í hálendismiðstöðinni við Drekagil í Ódáðahrauni kr. 1.000.000.

Til baka