Úthlutun í desember 2007

Flokkur almennra styrkja. Hver styrkur kr. 100.000.  Eftirtaldir fengu úthlutun:

•    Safnasafnið - Alþýðulistasafn Íslands, vegna sex samstarfsverkefna með ýmsum aðilum.
•    Magnús Aðalbjörnsson, vegna ritunar sögu Gagnfræðaskólans á Akureyri.
•    Bílaklúbbur Akureyrar, til að gera upp elsta vörubíl á Eyjafjarðarsvæðinu.
•    Kammerkór Norðurlands, til að halda tónleika og hljóðrita núverandi söngskrá.
•    Guðmundur Ingi Jónatansson, til þess að vinna ljósmyndafilmur á rafrænt form, myndir frá Dalvík og nágrenni.
•    Menningar- og listasmiðjan á Húsabakka, til að starfrækja Menningar- og listasmiðju á Húsabakka.
•    Kvennakór Akureyrar, til að gefa út geisladisk og fara í tónleikaferð.
•    Félag eldri borgara í Dalvíkurbyggð og Hrísey, til að halda kóramót í apr. 2008.
•    Karlakór Siglufjarðar, vegna tónleikahalds og þátttöku í kóramótum.
•    Íþróttafélagið Þór á Akureyri, til öflunar gagna um sögu Þórs í tilefni af 100 ára afmæli félagsins.
•    Herhúsfélagið, til reksturs hússins, þar sem listamönnum er boðin vinnuaðstaða og gisting.
•    Skákfélagið Goðinn, til kaupa á útbúnaði til skákiðkunar.
•    Birna Björnsdóttir, vegna námskeiða fyrir börn og unglinga í listsköpun.
•    Í fínu formi, Kór félags eldri borgara á Akureyri, til reksturs kórsins.
•    Roar Kvam, til tónleikahalds með Kvennakórnum Emblu.
•    GalleriBOX, til að halda ýmsar sýningar og uppákomur.
•    Hólmgeir Sigurgeirsson, vegna heimildamyndar um sögustaði í Eyjafirði.
•    George Hollanders, til að setja upp sýningu úti á víðavangi víðs vegar um Eyjafjarðarsveit.
•    Þórarinn Stefánsson, til að gefa út geisladisk, útsetningar fyrir píanó á ísl. þjóðlögum.
•    Guðmundur Þ. Júlíusson og Árni Geir Helgason, til að endurgera og breyta gömlum eikarbáti sem smíðaður var í Slippstöðinni 1971.
•    Snow Magic "Mývatn - töfraland jólanna", jólasveinaverkefni í Mývatnssveit.
•    Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, til reksturs starfseminnar.

Eftirtaldir fengu styrk í flokki þátttökuverkefna:

•    Kammerkórinn Hymnodia, vegna tónleikahalds í Akureyrarkirkju 1. desember sl. þar sem minnst var 300 ára ártíðar þýska tónskáldsins Dietrich Buxtehudes - kr. 150.000.
•    Þórir Ó. Tryggvason, til að koma filmum yfir á stafrænt form - kr. 150.000.
•    Snæuglan ehf., áður Fuglasafn Sigurgeirs, til að skrá safnmuni - kr. 150.000.
•    Sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni, til að reisa nýja svefnskála við sumarbúðirnar að Hólavatni - kr. 1.750.000.