Aðalfundur Akureyrardeildar KEA

Aðalfundur Akureyrardeildar KEA verður haldinn fimmtudaginn 22. mars kl. 20:00 á Veitingahúsinu Greifanum, annarri hæð

Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins. 

Kosnir verða fulltrúar til aðalfundar KEA sem verður haldinn 26. apríl og þeir félagsmenn Akureyrardeildar KEA sem vilja gefa kost á sér sem fulltrúar á aðalfund KEA, eru beðnir um að tilkynna það í síma 460 3400 ( Svanhildur ) eða í tölvupóstfangið svanhildur@kea.is fyrir kl 16:00 þriðjudaginn 20. mars.
Þeir sem voru fulltrúar á aðalfundi KEA 2017 eru sérstaklega beðnir um að staðfesta áhuga sinn.

Deildarstjórn Akureyrardeildar KEA