Aðalfundur Akureyrardeildar KEA

Aðalfundur Akureyrardeildar KEA verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar  kl. 20:00 á Veitingahúsinu Greifanum, annarri hæð.

Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins. Auk þess mun Jóna Friðriksdóttir safnstjóri Iðnaðarsafnsins halda stutta kynningu á safninu.

Kosnir verða fulltrúar til aðalfundar KEA sem haldinn verður 2. apríl. Eru þeir félagsmenn Akureyrardeildar KEA sem vilja gefa kost á sér sem fulltrúar á aðalfund KEA, eru beðnir um að tilkynna það í síma 460 3400 ( Ásta ) eða í tölvupóstfangið asta@kea.is fyrir kl 16:00 þriðjudaginn 25. febrúar.

Þeir sem voru fulltrúar á aðalfundi KEA 2019 eru sérstaklega beðnir um að staðfesta áhuga sinn.

Deildarstjórn Akureyrardeildar KEA