Aðalfundur Akureyrardeildar KEA

Verður haldinn fimmtudaginn 23. mars kl. 20:00 á Stuðlabergi, Hótel KEA.

Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins. Kosnir verða fulltrúar til aðalfundar KEA sem áformað er að halda 27. apríl nk.

Eru þeir félagsmenn Akureyrardeildar KEA sem vilja gefa kost á sér sem aðalfundarfulltrúar á aðalfund KEA, beðnir um að tilkynna það í síma 460 3400 (Ásta) eða í tölvupóstfangið asta@kea.is fyrir kl.16:00 mánudaginn 20. mars. Þeir sem voru fulltrúar á aðalfundi KEA 2022 eru sérstaklega beðnir um að staðfesta áhuga sinn. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í stjórn deildarinnar.

Deildarstjórn Akureyrardeildar KEA