Aðalfundur Akureyrardeildar KEA

Verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl. 20:00 í Vaðlabergi á Hótel KEA.

Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins. Kjörnir verða fulltrúar til aðalfundar KEA sem áformað er að halda 30. apríl nk. Auk þess verða tveir aðalmenn í stjórn deildarinnar kosnir til 3ja ára, og tveir varamenn kosnir til eins árs.

Stjórn Akureyrardeildar tilkynnir í samræmi við samþykktir félagsins og samþykktir fyrir starfsemi félagsdeilda KEA við val á fulltrúum Akureyrardeildar á aðalfundi KEA, verður eftirfarandi verklag viðhaft:

• Notast verður við slembiúrtaki (tilviljunarúrtaki) við uppstillingu á tilnefningum deildarstjórnar á aðalfundarfulltrúum, sækist fleiri en 50  félagar eftir fundasæti.
• Röðun varamanna verður eftir sama slembiúrtaki.
• Við uppstillingu verður farið eftir jafnréttisstefnu KEA svf.
• Deildarfundur kýs um tilnefningu deildarstjórnar á aðalfundi deildarinnar.

Eru þeir félagsmenn Akureyrardeildar KEA sem vilja gefa kost á sér sem aðalfundarfulltrúar á aðalfund KEA, beðnir um að tilkynna það í síma 460 3400 eða í tölvupóstfangið asdis@kea.is fyrir kl.12:00 mánudaginn 30. mars.

Félagsmenn er hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í stjórn deildarinnar.

Deildarstjórn Akureyrardeildar KEA