Aðalfundur KEA 2012

Aðalfundur KEA verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, fimmtudaginn 26. apríl kl. 20:00.
Á fundinum verða venjubundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Tillögur sem óskað er eftir að teknar séu til afgreiðslu á fundinum skulu berast stjórn skriflega eigi síðar er sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá og ársreikningur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund, þá verður einnig hægt að nálgast gögnin hér á heimasíðunni.