Aðalfundur KEA 2020

Aðalfundur KEA verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi fimmtudaginn 11. júní  kl. 20:00. Á dagskrá fundarins eru venjubundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Tillögur sem óskað er eftir að verði afgreiddar á fundinum skulu berast stjórn skriflega eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá og ársreikningur liggja frammi á skrifstofu félagsins. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar hér á heimasíðunni.