Aðalfundur KEA

Aðalfundur KEA verður haldinn í Ketilhúsinu á Akureyri, fimmtudaginn 30. apríl kl. 20:00. Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins, auk þess liggja fyrir  fundinum tillögur að samþykktarbreytingum. Tillögur sem óskað er eftir að teknar séu til afgreiðslu á fundinum skulu berast stjórn skriflega eigi síðar er sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, ársreikningur og tillögur að samþykktarbreytingum munu liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund, þá verður einnig hægt að nálgast gögnin á heimasíðunni.