Auglýst eftir styrkjum úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA

KEA auglýsir eftir styrkumsóknum til Menningar- og viðurkenningarsjóðs félagsins. Styrkúthlutun fer fram í byrjun desember. Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja þátta: a) Málefna einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið aðKEA auglýsir eftir styrkumsóknum til Menningar- og viðurkenningarsjóðs félagsins. Styrkúthlutun fer fram í byrjun desember. Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja þátta: a) Málefna einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. b) Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista og íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri er 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA. Styrkir eru veittir tvisvar á ári úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA. Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast skrifstofu KEA í Hafnarstræti 91, Akureyri á sérstökum eyðublöðum sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublað og fá allar upplýsingar um Menningar- og viðurkenningarsjóð KEA á heimasíðu KEA- www.kea.is Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2005