Auglýst eftir styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA svf.

Hér með er auglýst eftir styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA svf. og er umsóknarfrestur til 1. apríl nk. Styrkúthlutun verður kynnt á aðalfundi félagsins 30. apríl nk. Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til þriggja þátta: a) Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilHér með er auglýst eftir styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA svf. og er umsóknarfrestur til 1. apríl nk. Styrkúthlutun verður kynnt á aðalfundi félagsins 30. apríl nk. Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til þriggja þátta: a) Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. b) Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista og íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA. c) Þátttökuverkefna á sviði menningamála á félagssvæði KEA. Sérstök athygli skal vakin á því að styrkir til þátttökuverkefna eru einungis veittir einu sinni á ári og eru þeir ætlaðir til stærri verkefna á félagssvæði KEA. Fagráð fjallar um umsóknir eða fyrirliggjandi hugmyndir samstarfsaðila og gerir tillögur til stjórnar um val á verkefnum. Auð auki stendur til að KEA veiti sérstaklega nokkra styrki til íþróttamála. Íþróttafélög og foreldrafélög eru hvött til þess að koma á framfæri umsóknum um styrki sem geta fallið utan við þær skilgreiningar sem Menningar- og viðurkenningasjóður úthlutar eftir. Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast skrifstofu KEA í Hafnarstræti 91-95 á Akureyri á sérstökum eyðublöðum, sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublað og fá allar upplýsingar um Menningar- og viðurkenningasjóð KEA svf. hér á heimasíðunni.