Auglýst eftir styrkumsóknum í Menningar- og viðurkenningasjóð

KEA auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun tekur til tveggja flokka.Til einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæðinu. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. Til þátttökuverkefna á sviði menningarmála. Í flokki þátttökuverkefna er horft til stærri verkefna á sviði menningamála á félagssvæði KEA. Fagráð fjallar um og gerir tillögur að úthlutun hverju sinni. Umsóknarform má nálgast hér á heimasíðunni undir, samfélagið- umsóknir um styrk/auglýsingu, eða á skrifstofu félagsins og skal umsóknum skilað rafrænt eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36, á Akureyri fyrir 19. nóvember 2008.