Bögglageymsla KEA endurbyggð

Gamla bögglageymslan, sem stendur við Kaupvangsstræti 6, hefur sett mikinn svip á Gilið og þar með bæjarmynd Akureyrar í heila öld.  Húsið var byggt sem sláturhús árið 1907 en auk þess var þar meðal annars rekið mjólkurbú, bögglageymsla, verslun o.fl.  Líkt og með önnur hús í Gilinu var það byggt upp í kringum starfssemi KEA og hefur alla tíð verið í eigu félagsins.

Nú hefur verið ákveðið að ráðast í endurbyggingu hússins sem staðið hefur autt um langan tíma  og í dag var undirritaður samningur á milli eiganda hússins og Friðriks V. um uppbyggingu þess og leigu til 10 ára.  Við endurbætur á húsinu verður horft til þess að útlitið verði sem næst því upprunalega, en í heildina verður gólfflötur hússins um 462 fermetrar.

”Eigendur Friðriks V. hafa staðið framarlega í kynningu á norðlensku hráefni og norðlenskri matargerð og það er því ánægjulegt að þeir taki þátt í þessu verkefni með okkur” segir Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA.  Hann bendir jafnframt á að í Gilinu hafi KEA byggt upp flestar ef ekki allar grunneiningar sínar í matvinnuslu og umhverfið allt sé því órjúfanlegur hluti af sögu KEA og norðlenskrar matvinnslu.

Eigendur Friðriks V., sem hafa rekið staðinn í 6 ár, stefna á að opna í nýjum húsakynnum í sumar. Friðrik segir að hugmyndin sé að starfsemin verði fjölbreyttari en verið hefur, en að sérstaðan verði áfram sú sama þ.e. áhersla á hráefni af svæðinu.  Auk þess að efla starfsemi veitingastaðarins er hugmyndin að opna sælkeraverslun í húsinu þar sem áherslur verða með svipuðum hætti, það er á norðlenskt hráefni s.s. ferskan fisk og fleira.