Aðalfundur Akureyrardeildar KEA 2014

Verður haldinn fimmtudaginn 3. apríl kl. 20:00 á Hótel KEA

Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins. Kosnir verða fulltrúar til aðalfundar KEA sem áformað er að halda 30. apríl og eru þeir félagsmenn Akureyrardeildar KEA sem vilja gefa kost á sér sem fulltrúar á aðalfund KEA, beðnir um að tilkynna það í síma 460 3400 ( Svanhildur ) eða í tölvupóstfangið svanhildur@kea.is fyrir kl. 16:00 þann 26. mars.  Þeir sem voru fulltrúar á aðalfundi KEA 2013 eru sérstaklega beðnir um að staðfesta áhuga sinn.

Deildarstjórn Akureyrardeildar KEA