Upphaf styrkir verðlaunaverkefni Norðursprotans 2025

Upphaf fjárfestingarsjóður (100% dótturfélag KEA) var einn aðal styrktaraðila Norðursprotans 2025 en á föstudaginn fór fram lokaviðburður þess verkefnis þar sem leitað var að áhugaverðustu nýsköpunarhugmynd Norðurlands þetta árið. Upphaf veitti allt verðlaunafé að þessu sinni, samtals að fjárhæð 1 milljón króna.

Leitin hófst 19. maí og voru 22 glæsileg verkefni sem skiluðu inn umsóknum, en af þeim voru valin átta verkefni sem fengu að kynna verkefni sitt fyrir dómnefnd.

Eftir kynningar og spurningar frá dómnefnd stóðu þrjú verkefni upp úr, voru það:

Norðursnakk - Verkefni sem sameinar íslenskan uppruna, gæði og frumleika í íslensku snakki úr til dæmis harðfiski, þorskroði og byggi. Norðursnakk hlaut titilinn Norðansprotinn 2025 og 500.000 kr. í verðlaunafé.

Affordable Iceland – vefsíða sem auðveldar ferðamönnum sem koma til Íslands við að skoða landið á sem hagkvæmastan hátt, hlaut verðlaunafé upp á 300.000 kr.

NorðanStraumur / StreamNorth - Auglýsinga- og streymisvettvangur á netinu sem varpar ljósi á viðburði, afþreyingu og umhverfi á Norðurlandi – í beinni og eftir á, hlaut verðlaun upp á 200.000 kr.