Forseti Íslands afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir Hafdísi K. Ólafsson á Siglufirði styrk að upph…
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir Hafdísi K. Ólafsson á Siglufirði styrk að upphæð 150 þúsund krónur, en hún var einn af 26 styrkþegum í dag
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA við hátíðlega athöfn í Listasafninu á Akureyri í dag, að viðstöddu fjölmenni. Að þessu sinni hlutu 26 einstaklingar og félagasamtök styrki úr sjóðnum, samtals að upphæð 4,250 milljónir króna.

Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA við hátíðlega athöfn í Listasafninu á Akureyri í dag, að viðstöddu fjölmenni.   Að þessu sinni hlutu 26 einstaklingar og félagasamtök styrki úr sjóðnum, samtals að upphæð 4,250 milljónir króna.
Úr almenna flokknum hlutu eftirfarandi 150 þúsund kr. styrk:

  • Tónræktin ehf. til þróunar á tónlistarkennslu barna á aldrinum 4-6 ára.
  • Tónlistarfélag Akureyrar vegna vetrardagskrár félagsins.
  • Leikklúbburinn Krafla í Hrísey, til uppsetningar á leikverki.
  • Dóróthea Jónsdóttir, Eyjafjarðarsveit, til að byggja upp markaðstorg fyrir íslenskt handverk á netinu - www.listaland.is
  • Bjarni E. Guðleifsson - vegna útgáfu sinnar fyrstu bókar í ritaröðinni “Náttúruskoðaranum” sem inniheldur ýmsan almennan fróðleik úr náttúrunni.
  • Nedjelkja Marijan frá Serbíu, vegna útgáfu ljóða sinna sem segja frá lífi hennar. Nedjelkja flutti til Akureyrar árið 2002.
  • Hafdís K. Ólafsson til að koma upp úra- og gullsmíðasafni á Siglufirði.
  • Nonnahús vegna útgáfu kynningarbæklinga ætlaða erlendum ferðamönnum.
  • Jóhann Daníelsson frá Dalvík, vegna söfnunar á ýmsum heimildum um líf og starf fólks í Svarfaðardal á síðustu öld.
  • Sögufélag Svalbarðsstrandar, vegna söfnunar gamalla heimilda, sérstaklega myndefnis er tengist Svalbarðsströnd.
  • Listalíf ehf. - vegna gerðar heimildarmyndar um Sverri Hermannsson, húsasmíðameistara og safnara.


Eftirtaldir hlutu styrk að upphæð 100 þúsund kr. hver:

Leikmenn meistaraflokks KA í handknattleik vegna þátttöku þeirra í Evrópukeppni félagsliða.
Knattspyrnufélag Siglufjarðar, vegna Pæjumótsins sem haldið er ár hvert á staðnum.
Handknattleiksdeild Þórs, til reksturs deildarinnar.
Erling Þorgrímsson frá Húsavík, til að halda vímuefnalausa tónleika fyrir ungt fólk.
Ungir afreksmenn, styrkir að upphæð 200 þúsund kr. hver:
Inga Steinunn Helgadóttir, hún tók þátt í Alþjóðlegu Ólympíuleikunum í stærðfræði sl. sumar. Inga stundar nú nám í efnafræði í Þýskalandi.
Arnar Þór Stefánsson, tók þátt í Ólympíuleikunum í efnafræði sl. sumar, Arnar stundar nú nám í efnafræði við Háskóla Íslands með áherslu á verkfræði .
Jón Ingi Hallgrímsson, vegna æfingaferða með U-20 ára landsliði Íslands í íshokkí. Jón Ingi er tvímælalaust í fararbroddi íslenskra íþróttamanna í sinni grein.
Sigfús Fossdal, kraftlyfingamaður. Sigfús er tvöfaldur Íslandsmeistari og Norðurlandameistari unglinga, hann varð fjórði á Heimsmeistaramóti unglinga í Bandaríkjunum á liðnu hausti. Víkingur Þór Björnsson, skíðamaður. Hann keppir fyrir hönd Skíðafélags Akureyrar, en er nú búsettur í Noregi. Víkingur er í fremstu röð skíðamanna í sínum aldursflokki.
Kristján Uni Óskarsson, skíðamaður frá Ólafsfirði. Kristján Uni hefur verið einn besti skíðamaður landsins síðustu ár.
Ásta Björk Ingadóttir, skíðamaður frá Akureyri. Ásta Björk hefur keppt með unglingalandsliði Íslands á skíðum um árabil. Hún er ótvírætt í hópi bestu skíðamanna landsins.
Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíðamaður frá Akureyri. Dagný Linda hefur lengi verið í fararbroddi íslenskra skíðamanna. Hún er margfaldur Íslandsmeistari og hefur keppt á fjölmörgum alþjóðlegum mótum.
Jón Viðar Þorvaldsson, skíðamaður frá Akureyri. Jón Viðar varð Íslands- og bikarmeistari í flokki 1314 ára unglinga árið 2004 og keppti fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikum æskunnar sl. vetur. Hann er nú staddur í Noregi við æfingar og keppni.
Óðinn Guðmundsson,skíðamaður frá Akureyri. Óðinn tók þátt í heimsmeistaramóti unglinga í alpagreinum í febrúar sl. og er án vafa í fremstu röð skíðamanna í sínum aldursflokki.
Elsa Guðrún Jónsdóttir, skíðamaður frá Ólafsfirði. Elsa hefur unnið til fjölmarga Íslandsmeistaratitla á skíðagönguferli sínum. Hún er ótvírætt í allra fremstu röð íslenskra skíðamanna og keppir nú ötullega að því að vinna sér sæti á Vetrar-Ólympíuleikunum í vetur.