Framúrskarandi fyrirtæki 2013

Creditinfo staðfestir hér með að KEA svf er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2013.


Af 33.000 skráðum fyrirtækjum á Íslandi uppfylla 462 skilyrði Creditinfo um styrk og stöðugleika.

Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo

Skilyrðin eru:

  • Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2010 til 2012
  • Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
  • Að sýna rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
  • Að ársniðurstaðan sé jákvæð þrjú ár í röð
  • Að eignir séu 80 milljónir kr. eða meira rekstrarárin 2010 til 2012
  • Að eigið fjárhlutfall sé 20% eða meira, rekstrarárin 2010 til 2012
  • Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá 
  • Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo

KEA er á meðal 1,5% íslenskra fyrirtækja sem uppfylltu þessi skilyrði.