Framúrskarandi fyrirtæki 2014

Creditinfo staðfestir hér með að KEA svf er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2014.

 

Af tæplega 34.000 skráðum fyrirtækjum á Íslandi uppfylla 577 skilyrði Creditinfo um styrk og stöðugleika.

Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo

Skilyrðin eru:

  • Að hafa skilað ársreikningum til RSK síðasliðin þrjú ár
  • Líkur á alvarlegum vanskilum þess eru minni en 0,5% 
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð
  • Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð
  • Eignir hafa numið 80 milljónum eða meira þrjú ár í röð
  • Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð
  • Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá 
  • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo

KEA svf. er á meðal 1,7% íslenskra fyrirtækja sem standast þær kröfur