Creditinfo staðfestir hér með að KEA svf. er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2018.
Eingöngu koma til greina þau fyrirtæki sem staðist hafa styrkleikamat Creditinfo og uppfylla ströng skilyrði sem lögð eru til grundvallar við greiningu á framúrskarandi fyrirtækjum 2018.
Af rúmlega 38.500 fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá uppfylla 862 nafnbótina Framúrskarandi fyrirtæki 2018.
KEA svf. er á meðal 2% íslenskra fyrirtækja sem standast þær kröfur.
Skilyrðin eru:
- Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2015-2017
- Er í lánshæfisflokki 1,2 eða 3
- Rekstrarhagnaður (EBIT) var jákvæður rekstrarárin 2015-2017
- Að ársniðurstaðan sé jákvæð rekstrarárin 2015-2017
- Eiginfjárhlutfall sé a.m.k. 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð
- Að fyrirtækið sé virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
- Skráður framkvæmdastjóri í hlutafélagaskrá
- Rekstrartekjur voru a.m.k. 50 m.kr. rekstrarárið 2017
- Eignir voru a.m.k. 100 mkr. 2017, 90 m.kr. 2016 og 80 m.kr. 2015