Hildingur kaupir hlut í Slippnum

Hér handsala Anton Benjamínsson, framkvæmdastjóri Slippsins og Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmdastj…
Hér handsala Anton Benjamínsson, framkvæmdastjóri Slippsins og Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Hildings, kaup Hildings á hlutafénu.
Hlutafé í Slippnum Akureyri hefur verið aukið umtalsvert og er heildarvirði þess eftir aukningu 90 mkr.  Stærsti hluthafinn er Naustatangi sem er í eigu Málningar, Fjárfestingarfélagsins Fjarðar, stjórnenda Slippsins og fleiri aðila.  Með hlutafjáraukningunni kemur Hildingur inn sem nýr eignaraðili og verður næststærsti hluthafinn.  Auk Naustatanga og Hildings eru sjö aðilar með smærri eignarhluti í Slippnum Akureyri.

“Hildingur hefur að markmiði að fjárfesta í vænlegum fyrirtækjum þar sem tiltrú er á stjórnendum og framtíðaráformum. Slippurinn Akureyri fellur vel að þessu markmiði með öfluga aðila í eigendahópnum og við stjórnvölinn. Unnið er að því að gera starfsemina fjölbreyttari og við sjáum ekki annað en þetta fyrirtæki standi vel að vígi í þeirri þróun sem vænta má hér á svæðinu á næstu árum. Stórar framkvæmdir eru í farvatninu s.s. jarðgangagerð og stóriðja sem vænta má að hafi afleidd áhrif á mörgum sviðum,” segir Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Hildings.
Anton Benjamínsson, framkvæmdastjóri, segir innkomu Hildings í hluthafahópinn ánægjulega og styrkja félagið. “Þessi hlutafjáraukning er liður í því að stækka og efla Slippinn Akureyri. Að henni standa fyrri eigendur félagsins auk Hildings sem kemur nýr inn í hluthafahópinn. Félagið er að ganga frá samningum um tvö stór verkefni þessa dagana auk annarra verkefna. Útlitið fyrir næstu mánuði gott og bendir allt til þess að verkefnisstaðan verði góð út árið,” segir Anton.