Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir ráðin markaðs- og kynningarfulltrúi KEA

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarfulltrúi KEA og hefur hún störf nú þegar. Ingibjörg er 29 ára og lauk Bsc. gráðu í tölvu- og upplýsingatækni frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar frá árinu 2004 en þar áðuIngibjörg Ösp Stefánsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarfulltrúi KEA og hefur hún störf nú þegar. Ingibjörg er 29 ára og lauk Bsc. gráðu í tölvu- og upplýsingatækni frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar frá árinu 2004 en þar áður var hún fjármálastjóri hjá sama félagi. Áður starfaði Ingibjörg sem innkaupastjóri hjá Mjöll hf. Ingibjörg er gift Karel Rafnssyni verslunarstjóra á Akureyri og eiga þau 3 börn.