Jón Steindór Árnason til KEA

KEA hefur ráðið Jón Steindór Árnason sem fjárfestingastjóra með áherslu á fjárfestingar í óskráðum hlutabréfum.

Jón Steindór er 45 ára gamall viðskiptafræðingur með M.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands.  Hann er með 20 ára reynslu á íslenskum fjármálamarkaði.

Jón Steindór hefur meðal annars starfað í sérhæfðum fjárfestingum hjá Íslenskum verðbréfum og sem framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Tækifæris hf.  Þar áður starfaði hann hjá FME og BYR.  Þá hefur hann setið í fjölda stjórna á undanförnum árum.

Jón Steindór mun hefja störf hjá KEA í janúar n.k.