KEA auglýsir eftir umsóknum í Menningar- og viðurkenningasjóð

Styrkúhlutun tekur til eftirfarandi flokka:

1. Menningar- og samfélagsverkefni. Um er að ræða styrki til einstaklinga, þar á meðal ungs fólks, félaga eða hópa sem skara fram úr eða vinna að mikilvægum mennta- og menningarmálum á félagssvæðinu. Um er að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn. Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.

2. Íþrótta- og æskulýðsstyrkir

a. Styrkir til ungra afreksmanna á sviði íþrótta. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.

b. Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga. Í þessum flokki er verið að styðja almennt við íþrótta- og æskulýðsstarf klúbba og félaga sem halda úti metnaðarfullu starfi á sínu nærsvæði.

3. Rannsókna-og menntastyrkir. Um er að ræða styrki til rannsóknaverkefna við menntastofnanir á félagssvæði KEA sem og stuðning við ýmis mennta-, heilbrigðis- og rannsóknartengd verkefni. Í því samhengi skal m.a. horft til samstarfsverkefna mennta- og rannsóknarstofnana sem og verkefni er kalla á bættan búnað sem eflir innviði stofnana  á félagssvæðinu. 

Umsóknarfrestur rann út  24. október fyrir alla styrki nema rannsókna- og menntastyrki, þar var umsóknarfrestur til 31. október. Umsóknarfrestur er útrunninn. 

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglugerð sjóðsins.

Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublöð sem nálgast má fyrir hér að neðan eða á skrifstofunni og skal þeim skilað rafrænt eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36, á Akureyri fyrir miðvikudaginn 24. október 2018.

Úthlutun úr sjóðnum mun fara fram 1. desember 2018.