KEA auglýsir eftir umsóknum í Menningar- og viðurkenningarsjóð

 

Styrkúhlutun tekur til eftirfarandi flokka:

1. Menningar- og samfélagsverkefni. Um er að ræða styrki til einstaklinga, þar á meðal ungs fólks, félaga eða hópa sem skara fram úr eða vinna að mikilvægum mennta- og menningarmálum á félagssvæðinu. Um er að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn. Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.

2. Íþrótta- og æskulýðsstyrkir

a. Styrkir til ungra afreksmanna á sviði íþrótta. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.

b. Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga. Í þessum flokki er verið að styðja almennt við íþrótta- og æskulýðsstarf klúbba og félaga sem halda úti metnaðarfullu starfi á sínu nærsvæði, umsækjendur þurfa að vera með lögfesti á félagssvæði KEA.

3. Rannsókna-og menntastyrkir. Um er að ræða styrki til rannsóknaverkefna við menntastofnanir á félagssvæði KEA sem og stuðning við ýmis mennta-, heilbrigðis- og rannsóknartengd verkefni. Í því samhengi skal m.a. horft til samstarfsverkefna mennta- og rannsóknarstofnana sem og verkefni er kalla á bættan búnað sem eflir innviði stofnana á félagssvæðinu. 

Umsóknarfrestur rennur út 23. október fyrir alla styrki nema rannsókna- og menntastyrki, þar er umsóknarfrestur til 30. október. 

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglugerð sjóðsins.

Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublöð sem nálgast má fyrir hér að neðan eða á skrifstofu KEA og skal þeim skilað rafrænt eða á skrifstofunni, Glerárgötu 36, á Akureyri fyrir fimmtudaginn 24. október 2019 fyrir alla styrki nema rannsókna- og menntastyrki, þar þarf að skila umsóknum inn fyrir 31. október. 

Úthlutun úr sjóðnum mun fara fram 1. desember 2019.

Umsóknareyðublöð:

Menningar- og samfélagsverkefni

Íþrótta- og æskulýðsstyrkir

Ungir afreksmenn

Rannsókna- og menntastyrkir