KEA færir Fjölmennt tölvubúnað að gjöf

Halldór Jóhannssson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti í dag Fjölmennt á Akureyri tölvubúnað að gjöf.  Nýverið flutti Fjölmennt í nýtt húsnæði að Hvannavöllum 14 en þar með lauk langri bið eftir viðunandi húsnæði fyrir starfsemina.

Forveri Fjölmenntar á Akureyri var Hvammshlíðarskóli eða Fullorðinsfræðsla fatlaðra.  Fyrir tæpum fimm árum var Fjölmennt sett á laggirnar og starfar á landsvísu.  Fjölmennt er sjálfseignarstofnun í eigu ríkisins með sjálfstæðan fjárhag en starfar eftir þjónustusamningi við Menntamálaráðuneytið.  Starfsstöðvar eru þrjár; í Reykjavík, á Akureyri og á Selfossi.

Starfsemin á Akureyri skiptist í þrjár deildir.  Í fyrsta lagi símenntunardeild þar sem þroskaskertir sækja margs konar námskeið.  Í öðru lagi endurhæfingardeild sem er fyrst og fremst fyrir þá sem eru að ná sér á strik eftir erfið veikindi eða slys.  Í þriðja og síðasta lagi framhaldsdeild sem er fyrir mikið fatlaða nemendur á framhaldsskólaaldri.  Milli 80 og 90 nemendur sækja námskeið að jafnaði hjá Fjölmennt á Akureyri á hverju starfsári.

 Jón Stefán Baldursson, deildarstjóri Fjölmenntar á Akureyri, segir að gjöfin, netþjónn, afrituanrbúnaður o.fl., muni koma að góðum notum og verða til þess að bæta enn frekar aðstöðu Fjölmenntar.