KEA fagnar 140 ára afmæli með 10 milljóna króna styrk til björgunarsveita

Í tilefni 140 ára afmælis KEA á árinu hefur félagið ákveðið að styrkja björgunarsveitir á félagssvæði sínu um samtals 10 milljónir króna. Með styrknum vill KEA þakka björgunarsveitunum fyrir ómetanlegt framlag þeirra til öryggis og velferðar íbúa á svæðinu.

„KEA hefur lengi lagt áherslu á að hluti af ávinningi af starfsemi félagsins skili sér aftur til samfélagsins. Á þessum tímamótum fannst okkur því vel við hæfi að beina stuðningi til björgunarsveitanna. Þær sinna mikilvægu starfi vítt og breitt um félagssvæðið og með þessum styrk viljum við sýna þakklæti okkar fyrir það ómetanlega starf sem þær vinna,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA.

Styrknum verður úthlutað til björgunarsveita á félagssvæði KEA í samræmi við tekjuskiptingarkerfi Landsbjargar. Björgunarsveitir gegna lykilhlutverki í öryggi íbúa og byggir starf þeirra að stórum hluta á sjálfboðavinnu, ósérhlífni og ríkri samfélagsvitund.

„Við færum KEA okkar bestu þakkir fyrir þennan rausnarlega styrk og þann hlýhug sem honum fylgir. Stuðningur sem þessi skiptir miklu máli fyrir starf björgunarsveitanna og hjálpar okkur að sinna mikilvægu hlutverki okkar í þágu samfélagsins,“ segir Haukur Gunnarsson, formaður björgunarsveitarinnar á Dalvík.

KEA var stofnað 19. júní 1886 þegar bændur í Eyjafirði komu saman á Grund og stofnuðu Pöntunarfélag Eyfirðinga, sem síðar varð Kaupfélag Eyfirðinga. Markmiðið var að efla samstöðu, bæta viðskiptakjör og skapa betri lífsskilyrði fyrir íbúa svæðisins. Á þeim 140 árum sem liðin eru hefur KEA gegnt mikilvægu hlutverki í atvinnu- og samfélagsuppbyggingu á félagssvæði sínu. Þótt starfsemi félagsins hafi tekið miklum breytingum í gegnum tíðina hefur grunnstefið haldist hið sama.

Í dag eru félagsmenn KEA rúmlega 23 þúsund talsins og meira en helmingur íbúa á félagssvæði félagsins er í KEA. Félagið leggur nú megináherslu á fjárfestingastarfsemi og á eignarhluti í fyrirtækjum á félagssvæði sínu. Jafnframt ráðstafar KEA árlega umtalsverðum fjárhæðum af hagnaði sínum til styrkja á sviði menningar-, íþrótta- og æskulýðsstarfs, eftir því sem afkoma leyfir.