KEA fjárfestir í styrjueldi

KEA hefur í gegnum dótturfélag sitt Upphaf fjárfestingasjóð, fjárfest í Hinu Norðlenska Styrjufélagi (HNS). Starfsstöð félagsins er á Ólafsfirði þar sem uppbygging og undirbúningur húsnæðis fer fram. Framleiðsla félagsins byggir á umhverfisvænni einkaleyfisvarinni aðferðarfræði Alfred Wegener Institut, við framleiðslu á hrognunum, þar sem hrogn eru strokin úr fiskinum áður en hann er aftur settur í ker. Félagið er stofnað að frumkvæði Dr. Eyþórs Eyjólfssonar og mun félagið framleiða styrjuhrogn, sem er ein dýrasta afurð fiska, með sjálfbærum hætti. Stofninn sem framleiðslan mun byggja á var fluttur inn frá Bandarikjunum árið 2014 en HNS keypti hann árið 2022 og flutti í starfsstöð félagsins. Í húsnæði HNS á Ólafsfirði er gert ráð fyrir bæði eldi og seiðaframleiðslu.