KEA kaupir Hafnarstræti 98

KEA hefur, ásamt öðrum fjárfestum, fest kaup á Hafnarstræti 98.  Fyrri eigendur hússins höfðu áformað niðurrif á því þegar húsafriðunarnefnd friðaði húsið síðasta haust og hefur nokkur umræða um húsið  fylgt í kjölfarið. 

Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA,  segir markmiðið að ráðast strax í endurbætur á húsinu og koma því í upphaflegt horf  samhliða því sem möguleikar á viðbygginu verða skoðaðir.  Fyrirhugað er að húsnæðið verði innréttað sem skrifstofuhúsnæði.