KEA styrkir hjálparstarf á Eyjafjarðarsvæðinu

Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA afhenti í dag samstarfsaðilum hjálparstarfs á Eyjafjarðarsvæðinu, 700 þúsund króna peningagjöf. Gjöfin er ætluð til að létta undir með fólki sem þarfnast aðstoðar fyrir jólin.

Fjögur samtök munu vinna saman í ár að jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu eins og í fyrra og gafst það samstarf vel. Um er að ræða Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og Rauða krossinn við Eyjafjörð.

Sigurveig Bergsteinsdóttir og Hafsteinn Jakobsson veittu gjöfinni viðtöku og sögðu að framlag KEA kæmi að góðum notum. Þau reikna með að úthluta í  kringum 300 styrkjum í formi greiðslukorta.