KEA styrkir KA og Þór

KEA hefur endurnýjað styrktarsamninga við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar og mun áfram verða einn af aðalstyrktaraðilum félaganna. Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, segir félagið hafa lagt metnað sinn í að skila stórum hluta afkomu sinnar til eflingar íþrótta- og æskulýðsstarfi á félagssvæðinu og ætíð ánægjulegt fyrir félagið að geta látið gott af sér leiða á þessu sviði.  Sigfús Helgason skrifaði undir samninginn fyrir hönd Þórs og Hrefna G. Torfadóttir fyrir hönd KA.   Þau sögðu að þessir styrktarsamningar hefðu reynst afar þýðingarmiklir á undanförnum árum og nýttust sérstaklega vel við eflingu á starfi og uppbyggingu íþróttafélaganna.