KEA úthlutar 4 milljónum úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

KEA úthlutaði í dag styrkjum úr tveimur flokkum Menningar- og viðurkenningarsjóðs.  Annars vegar var um að ræða úthlutun íþróttastyrkja og hins vegar styrki sem veittir voru ungum afreksmönnum á sviði mennta, lista og íþrótta. Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA afhenti styrkina í dag.

Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn í mars síðastliðnum og bárust 49 umsóknir í flokki ungra afreksmanna en 29 umsóknir um íþróttastyrki.  Alls komu 3,95 milljónir til úthlutunar, 8 aðilar hlutu íþróttastyrk en styrkir í flokki ungra afreksmanna voru 14.

Styrkþegar voru þessir:

 
Ungir afreksmenn kr. 225.000.

  • Stefán Jón Sigurgeirsson, skíðamaður.
  • Þorsteinn Ingason, skíðamaður.
  • Bjartmar Örnuson, frjálsíþróttamaður.
  • Þorsteinn Ingvarsson, frjálsíþróttamaður.
  • Björn Guðmundsson, kylfingur.
  • Andri Snær Stefánsson, handknattleiksmaður.
  • Ómar Smári Skúlason, íshokkímaður.  

Ungir afreksmenn kr. 125.000.

  • Gunnar Þór Halldórsson, skíðamaður.
  • Bjarki Gíslason, frjálsíþróttamaður.
  • Svavar Skúli Stefánsson, sundmaður.
  • Rakel Rós Snæbjörnsdóttir, frjálsíþróttakona.
  • Ásbjörn Friðriksson, handknattleiksmaður.
  • Bryndís Rún Hansen, sundkona.
  • Eyrún Unnarsdóttir, söngkona.

 Íþróttastyrkir

  • Hallgrímur Valsson, til að sækja þjálfaranámskeið í krullu vegna ungra iðkenda.  Kr.  50.000.
  • Lionsklúbburinn Hængur,  vegna Hængsmótsins, afmælismóts. Kr.  250.000.
  • Nökkvi, félag siglingamanna á Akureyri, til kaupa á seglbátum og til að bæta aðstöðu sína. Kr. 500.000.
  • Skákfélag Akureyrar, til æfinga- og keppnisferðar sex unglinga til Danmerkur í sumar. Kr. 100.000.
  • Sundfélagið Óðinn, vegna aldursflokkameistaramóts Íslands í sundi. Kr. 300.000.
  • Ungmennafélag Akureyrar, til að senda einstaklinga á þjálfunarnámskeið vegna ungra iðkenda. Kr. 100.000.
  • Ungmennafélagið Leifur heppni, til kaupa á áhöldum vegna fimleikaiðkunar barna í Öxarfirði. Kr. 100.000.
  • Ungmennafélagið Smárinn, til að leggja varanlegt slitlag á atrennubraut á íþróttavellinum við Þelamerkurskóla. Kr. 100.000