KEA úthlutar 5 milljónum króna úr Háskólasjóði

Halldór Ásgrímsson afhendir Hreiðari Þór Valtýssyni styrk úr Háskólasjóði KEA
Halldór Ásgrímsson afhendir Hreiðari Þór Valtýssyni styrk úr Háskólasjóði KEA
Á aðalfundi KEA þann 6. maí síðastliðinn var tilkynnt um úthlutun úr Háskólasjóði KEA árið 2006. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, afhenti styrkina við formlega athöfn í húsnæði Háskólans á Borgum í dag.

Samstarfsyfirlýsing KEA og Háskólans um styrktarverkefni var undirrituð þann 31. október 2002 og hefur frá þeim tíma verið úthlutað árlega úr sjóðnum. Almennt er horft til verkefna sem eru viðbót við samþykkta starfsemi HA og/eða samstarfsstofnana, verkefna sem fela í sér aukin eða útvíkkuð tækifæri fyrir nemendur og starfsmenn eða verkefni sem eru til þess fallin að efla byggð og tengingu við atvinnulíf, menningu eða náttúrufar félagssvæðisins.
Að þessu sinni koma 5 milljónir til úthlutunar en 22 umsóknir bárust sjóðnum, samtals að upphæð 20,2 m.kr.

Fjarnám til framtíðar - Netháskóli
Umsjónarmaður:Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, RHA

Úthlutun: 500.000 kr.


Sérskipulagt námskeið í auðlindafræðum fyrir erlenda nemendur

Umsjónarmaður: Hjörleifur Einarsson, Auðlindadeild

Úthlutun: 500.000 kr.

Rannsóknir á fjölda og atferli nytjafiska í Eyjafirði
Umsjónarmaður: Hreiðar Þór Valtýsson, Auðlindadeild

Úthlutun: 1.000.000 kr.
 
Fóður úr Vetni
Umsjónarmaður: Jóhann Örlygsson, Auðlindadeild
Úthlutun: 500.000 kr.
 

Vestnordens historie (VNH)
Umsjónarmaður: Jón Þ. Þór, Auðlindadeild
Úthlutun: 500.000 kr

Rannsóknir á ónæmissvörun lúðulirfa
Umsjónarmaður: Rannveig Björnsdóttir, Auðlindadeild
Úthlutun: 500.000 kr.

Providing virtualized services within the hybrid Grid infrastructure to run large scale simulations
Umsjónarmaður: Syed Murtaza, Upplýsingatæknideild
Úthlutun: 500.000 kr.

Nám í orkufræðum við Háskólann á Akureyri
Umsjónarmaður: Þórleifur Stefán Björnsson, Rannsókna- og alþjóðasvið
Úthlutun: 500.000 kr.
 

Ráðstefnurit vegna ráðstefnu NSN á Akureyri, 22.-25. sept. 2005.
Umsjónarmaður: Ögmundur Knútsson, RHA
Úthlutun: 500.000 kr.