KEA úthlutar 5.8 milljónum úr Menningar- og viðurkenningasjóði

Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, úthlutaði í dag styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Að þessu sinni var úthlutað úr tveimur flokkum; annars vegar íþróttastyrkjum og hins vegar styrkjum sem veittir eru ungum afreksmönnum á sviði mennta, lista og íþrótta.

Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn í apríl síðastliðnum og bárust alls 64 umsóknir í flokki ungra afreksmanna og 38 umsóknir um íþróttastyrki.  Alls komu 5,8 milljónir til úthlutunar; 8 aðilar hlutu íþróttastyrk en styrkir í flokki ungra afreksmanna voru 24.
   
Styrkþegar voru þessir:

o Íþróttastyrkir
o Skíðafélag Ólafsfjarðar kr. 400.000,- til uppbyggingar á aðstöðu og tækjabúnaði.
o Jóhanna Dögg Stefánsdóttir kr. 100.000,- til að bjóða krökkum á aldrinum 6-16 ára upp á danskennslu á Raufarhöfn.
o Skíðafélag Akureyrar kr. 200.000 til kaupa á hljóðkerfi og sjálfvirkum tímatökubúnað fyrir skíðagöngu.
o Birkir Árnason kr. 150.000,- vegna keppnisferðar fimm drengja með landsliði Íslands í íshokkí til Ástralíu.
o Sundfélagið Óðinn/Krókódílar, Krossfiskar kr. 150.000,-  vegna æfinga- og keppnisferðar hóps fatlaðra sundmanna til Færeyja.
o Blakdeild KA kr. 350.000,- til að halda Norðurlandamót U19 á Akureyri í september.
o Skógræktarfélag Eyfirðinga kr. 550.000, til lagningar fjölnota stíga í Kjarnaskógi.
o Golfklúbburinn Hvammur kr. 100.000,- til uppbyggingar á  barna- og unglingastarfi.

Ungir afreksmenn- kr. 225.000,-
o Sigurður Helgi Oddsson, píanóleikari.
o Bergþór Steinn Jónsson, siglingar og  júdo.
o Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona.
o Sigurgeir Halldórsson, skíðamaður.
o Ágúst Freyr Dansson, skíðamaður.
o Andri Steindórsson, skíðamaður.

Ungir afreksmenn- kr. 175.000,-
o Svavar Ingvarsson,frjálsíþróttamaður.   
o Orri Blöndal, íshokkímaður.
o Baldvin Þór Gunnarsson, snocross, motocross, enduro.
o Árni Björnsson, blakmaður.

Ungir afreksmenn- kr. 125.000,-   
o Oddur Grétarsson, handknattleiksmaður.   
o Heiðar Þór Aðalsteinsson, handknattleiksmaður.
o Halla Sif Guðmundsdóttir, skíðamaður.   
o Hjörleifur Einarsson, skíðamaður.
o Sigurður Óli Árnason, íshokkímaður.   
o María Guðmundsdóttir, skíðakona.   
o Kristófer Finnsson, motocross, snocross, íscross.
o Selmdís Þráinsdóttir, frjálsíþróttakona.
o Ulker Gasanova, skákkona.
o Brynjar Leó Kristinsson, skíðagöngumaður.
o Ingibjörg Óladóttir, kraftlyftingakona.
o Andri Fannar Stefánsson, knattspyrnumaður.
o Jón Viðar Þorvaldsson, skíðamaður.
o Andri Már Mikaelsson, íshokkímaður.