KEA úthlutar styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði

Fjármálaráðherra,  Steingrímur J. Sigfússon og framkvæmdstjóri KEA, Halldór Jóhannsson afhentu í dag styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Þetta er í 76. sinn sem KEA veitir styrki úr sjóðnum og fór úthlutunin fram í Listasafninu á Akureyri. Auglýst var eftir umsóknum í september síðastliðnum og bárust 130 umsóknir. Veittir voru 38 styrkir, samtals að upphæð 8 milljónir króna.

Úthlutað var úr fjórum styrkflokkum; almennum flokki, ungum afreksmönnum, þátttökuverkefnum og íþróttastyrkjum. Þrettán aðilar hlutu almennan styrk, hver að upphæð 150 þúsund krónur. Til ungra afreksmanna voru veittar fjórtán viðurkenningar og styrkir, samtals 2,1 milljón króna. Til þátttökuverkefna var úthlutað 1,5 milljón króna og hlutu fjórir aðilar styrk. Sjö íþróttastyrkir voru veittir, samtals að fjárhæð 2,5 milljónir króna.

Almennir styrkir, hver styrkur kr. 150.000,-. Eftirtaldir fengu úthlutun:
 
•    Aflið, samtök gegn  kynferðis- og heimilisofbeldi á Norðurlandi, til rekstrar félagsins.
•    Hið þingeyska fornleifafélag, til að efla rannsóknir á íslenskri miðaldamenningu í Þingeyjarþingi.
•    Minjasafnið á Akureyri, til að gera forkönnun á fornleifum við Hvatastaði í Hrísey.
•    Kammerkór Norðurlands, til tónleikahalds.
•    Þorsteinn Gunnarsson, til að gefa út rit um verk Björgvins Guðmundssonar tónskálds.
•    Sumartónleikar í Akureyrarkirkju, til að halda röð tónleika í Akureyrarkirkju.
•    Þráður – Hönnunarsamkeppni, til að halda hönnunarsamkeppni í framleiðslu og hönnun á hlutum úr íslenskri ull.
•    Ungmennafélagið Efling í Reykjadal, til að setja upp frumsaminn söngleik.
•    Byggðasafnið Hvoll, til að gefa út kver um þætti úr byggðasögu Dalvíkurbyggðar.
•    Eyfirskir fornbílar á Akureyri, til að gera upp gamlan slökkvibíl.
•    Björn Ingólfsson, til ritunar á Sögu Grýtubakkahrepps.
•    Karlakór Eyjafjarðar, til að gefa út geisladisk.
•    Kirkjugarðar Laugalandsprestakalls, til að hlaða upp veggi umhverfis kirkjugarðinn í Saurbæ.

Ungir afreksmenn, styrkupphæð 175.000,-kr.

•    Ómar Friðriksson, knattspyrna.
•    Helga Hansdóttir, júdó.
•    Rakel Hönnudóttir, knattspyrna.
•    Karen Sigurbjörnsdóttir, skíði.
•    Inga Rakel Ísakdóttir, skíði.
•    Sveinborg Katla Daníelsdóttir, taekwondo.
•    Örn Dúi Kristjánsson, frjálsar íþróttir.

Ungir afreksmenn, styrkupphæð 125.000,-kr.

•    Bjarki Sigurðsson, snocross,motorcross og enduro.
•    Sesselja Fanneyjardóttir, blak.
•    Brandur Þorgrímsson, eðlisfræði.
•    Agnes Eva Þórarinsdóttir, frjálsar íþróttir.
•    Karl Guðmundsson, myndlist.
•    Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrna.
•    Bjarki Gíslason, frjálsar íþróttir.

Íþróttastyrkir:

•    Landslið Íslands í krullu, kr. 150.000,- til að taka þátt í Evrópumeistaramótinu í krullu.
•    Golfklúbbur Ólafsfjarðar, kr. 150.000,- til að byggja upp inniaðstöðu klúbbsins.
•    Hestaíþróttafélagið Þráinn, kr. 800.000,- til að leggja lokahönd á byggingu reiðskemmu.
•    Skíðadeild Völsungs, kr. 400.000,- til að koma upp útivistarsvæði á Reykjaheiði.
•    Ungmennafélagið Austri, kr. 200.000,- til endurnýjunar tækja til frjálsíþróttaiðkunar.
•    Karatefélag Akureyrar, kr. 300.000,- til kaupa á öryggis og hlífðarbúningum.
•    Ungmennafélagið Samherjar, kr. 500.000,- til að koma upp sparkvelli á útivistarsvæði við Hrafnagilsskóla.

Þátttökuverkefni:

•    Völuspá,  kr. 300.000,- til að gefa út ritverkið "Saga Gagnfræðaskólans á Akureyri”.
•    Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, kr. 200.000,- til að halda skólatónleika.
•    Siglingaklúbburinn Nökkvi, kr. 300.000,- til að bæta aðstöðu klúbbsins.
•    Mótorhjólasafnið á Akureyri, kr. 700.000,- til uppbyggingar safnsins.

Sjá umfjöllun N4 um úthlutunina

http://n4.is/tube/file/view/627/