Menningar- og Viðurkenningasjóður KEA auglýsir eftir styrkumsóknum

Styrkúhlutun tekur til eftirfarandi flokka:

1. Menningar- og samfélagsverkefni. Um er að ræða styrki til einstaklinga, þar á meðal ungs fólks, félaga eða hópa sem skara fram úr eða vinna að mikilvægum mennta- og menningarmálum á félagssvæðinu. Um er að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn. Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.

2. Íþrótta- og æskulýðsstyrkir

a. Styrkir til ungra afreksmanna á sviði íþrótta. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.

b. Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga. Í þessum flokki er verið að styðja almennt við íþrótta- og æskulýðsstarf klúbba og félaga sem halda úti metnaðarfullu starfi á sínu nærsvæði, umsækjendur þurfa að vera með lögfesti á félagssvæði KEA.

Umsóknarfrestur rennur út 19. október.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglugerð sjóðsins.

Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublöð sem nálgast má hér að neðan  og skal þeim skilað rafrænt í síðasta lagi miðvikudaginn 19. október 2022.

Úthlutun úr sjóðnum fer fram þann 1. desember nk.

Umsóknareyðublöð:

Menningar- og samfélagsverkefni

Íþrótta- og æskulýðsstyrkir

Ungir afreksmenn