Nýr starfsmaður hjá KEA

Björn Gíslason hefur verið ráðinn til starfa hjá KEA en hann mun hafa umsjón með sérhæfðum fjárfestingum fyrirtækisins. Björn hefur áður starfað hjá KEA við það sama en hefur s.l. ár stundað framhaldsnám við Copenhagen Business School. 

Björn er 43 ára gamall og er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri en hann er að auki með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla. Björn hefur hlotið löggildingu sem verðbréfamiðlari. 

Björn hefur áður starfað sem rekstrarstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Stefnu á Akureyri en þar áður starfaði Björn hjá Íslenskum verðbréfum sem sjóðstjóri sérhæfðra fjárfestinga. Björn hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja.